25.08.20 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Conte áfram með Inter (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Inter hefur staðfest að Antonio Conte verði áfram við stjórnvölinn. Þetta varð ljóst eftir að hann fundaði með Steven Zhang, forseta félagsins, í dag.
Inter sendi frá sér stutta yfirlýsingu þar sem segir að fundurinn hafi heppnast vel og að báðir aðilar muni halda áfram þeirri vegferð að vinna að áframhaldandi stefnu félagsins.
Inter sendi frá sér stutta yfirlýsingu þar sem segir að fundurinn hafi heppnast vel og að báðir aðilar muni halda áfram þeirri vegferð að vinna að áframhaldandi stefnu félagsins.
Eftir tap gegn Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sagði Conte við fjölmiðla að framtíð sín væri í óvissu.
Conte stýrði Inter í annað sæti í ítölsku A-deildinni á liðnu tímabili og Zhang vildi halda honum í starfi.
Conte stýrði Inter í annað sæti í ítölsku A-deildinni á liðnu tímabili og Zhang vildi halda honum í starfi.
📢 | STATEMENT
— Inter (@Inter_en) August 25, 2020
Note from the Club following the meeting with Antonio Conte 👇https://t.co/2piD93bYYy
