25.08.20 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
KR kallar Hjalta Sigurðsson til baka frá Leikni (Staðfest)

Hjalti lék sinn síðasta leik fyrir Leikni á sunnudag.

Mynd: Haukur Gunnarsson

Íslandsmeistarar KR hafa kallað Hjalta Sigurðsson til baka úr láni hjá Leikni í Breiðholti.
Hjalti var lánaður til Leiknismanna annað sumarið í röð en hann hefur leikið stórt hlutverk í Breiðholtinu síðustu tímabil.
Hjalti er hægri bakvörður og verður tvítugur í næsta mánuði. Hann getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum.
2018 spilaði Hjalti þrjá leiki með KR í efstu deild. Hann verður löglegur með KR-ingum á morgun þegar þeir mæta Val í stórleik í Pepsi Max-deild karla.
Í sumar hefur Hjalti leikið sex leiki í Lengjudeildinni en hann var að glíma við meiðsli í upphafi tímabils.

Hjalti kallaður heim!
— Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) August 25, 2020
KR hefur kallað @HjaltiSig00 aftur á Meistaravelli. Hjalti var hjá okkur á láni annað tímabilið í röð.
Við þökkum Hjalta kærlega fyrir okkur og óskum honum alls hins besta í búningi KR! Áfram Hjalti! 💜💙 #StoltBreiðholts pic.twitter.com/2Bcv6KVZcB