Fotbolti.net
25.08.20 - 10:19
Magnús Már Einarsson

Þórður Þorsteinn í HK (Staðfest)

Þórður Þorsteinn í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur fengið Þórð Þorstein Þórðarson í sínar raðir á láni frá FH út tímabilið.

Þórður kom til FH frá uppeldisfélagi sínu ÍA fyrir ári síðan en hann hefur leikið þrettán leiki í deild og bikar með Fimleikafélaginu síðan þá.
Þórður getur spilað bæði sem bakvörður og kantmaður en samningur hans hjá FH rennur út um áramót.

„Við þökkum Þórði kærlega fyrir framlag sitt til Fimleikafélagsins og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi!" segir á Facebook síðu FH.

HK-ingar hafa verið í leit að hægri bakverði síðan Birkir Valur Jónsson fór til Spartak Trnava í Slóvakíu á dögunum.

Þórður gæti spilað sinn fyrsta leik með HK gegn Gróttu annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.