Fotbolti.net
25.08.22 - 09:42
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Umtiti orðinn samherji Þóris hjá Lecce (Staðfest)

Umtiti orðinn samherji Þóris hjá Lecce (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Samuel Umtiti hefur gengið í raðir ítalska félagsins Lecce á lánssamningi frá Barcelona. Þessi 28 ára franski miðvörður hefur verið mikið á meiðslalistanum síðustu ár.

Hann vonast til að endurræsa feril sinn hjá Lecce en Barcelona mun halda áfram að borga meirihluta af launum hans.
Engin ákvæði eru í lánssamningnum um möguleg kaup.

Umiti gekk í raðir Barcelona sumarið 2016 frá Lyon og hefur spilað 133 leiki í öllum keppnum fyrir félagið. Hann hefur hjálpað Börsungum að vinna La Liga tvívegis og Konungsbikarinn þrívegis.

Lecce hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í ítölsku A-deildinni, 1-2 gegn Inter og 1-0 gegn Sassuolo. Íslenski landsliðsmaðurinn Þórir Jóhann Helgason spilar fyrir Lecce og hefur komið af bekknum í báðum leikjum.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.