Fotbolti.net
25.09.13 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Javier Chevanton til QPR (Staðfest)

Javier Chevanton til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur fengið úrúgvæska framherjann Javier Chevanton í sínar raðir.

Chevanton var án félags eftir að samningur hans við Lecce rann út í sumar og því kemur hann frítt til QPR.
,,Eftir meiðslin hjá Bobby Zamora og Andy Johnson vorum við fámennir í þessari stöðu,\" sagði Harry Redknapp stjóri QPR.

,,Javier hefur æft með okkur og fallið mjög vel inn í hópinn.\"

Chevanton er 33 ára gamall en hann hefur meðal annars leikið með Monaco og Sevilla á ferli sínum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.