25.09.14 - 19:12
Magnús Már Einarsson
Tommy Nielsen tekur við Grindavík (Staðfest)

Tommy Nielsen í leik með Fjarðabyggð í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tommy Nielsen hefur verið ráðinn þjálfari hjá Grindavík en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið í dag.
Tommy tekur við af Milan Stefán Jankovic sem hefur náð samkomulagi við knattspyrnudeild Grindavíkur um að láta af störfum.

Hinn 42 ára gamli Tommy hefur verið spilandi aðstoðarþjálfari hjá Fjarðabyggð undanfarin tvö ár en hann hjálpaði liðinu að vinna 2. deildina í sumar eftir að hafa unnið 3. deildina í fyrra.
Tommy var eins og klettur í vörn FH frá 2003-2011 þegar hann ákvað að hætta.
Tommy tók síðan skóna aftur af hillunni í fyrra. Skórnir fóru þó alveg á hilluna í lok síðasta mánaðar þegar Tommy varð fyrir því óláni að slíta krossband.
Grinadvík endaði í fimmta sæti í 1. deildinni í sumar eftir að hafa verið í vandræðum framan af móti.
Sjá einnig:
Tommy Nielsen hættur: Fyrstu titlarnir með FH standa upp úr