FH hefur staðfest að félagið hafi keypt Matthías Vilhjálmsson í sínar raðir á nýjan leik frá Valerenga.
Matthías gerir þriggja ára samning við FH en hann gengur formlega til liðs við félagið um áramótin.
Hinn 33 ára gamli Matthías er fjölhæfur miðju og sóknarmaður en hann kom ungur að árum til FH frá Ísafirði.
Á ferli sínum hjá FH skoraði Matthías 46 mörk í 151 leik en hann varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og tvisvar sinnum bikarmeistari.
Matthías hefur leikið í Noregi síðan árið 2012 og orðið fjórum sinnum meistari þar í landi.
Matthías spilaði með Start áður en hann fór til Rosenborg þar sem hann raðaði inn titlum á árunum 2015 til 2019. Hann er nú á sínu öðru tímabili með Valerenga.
Á ferli sínum hefur Matthías leikið sextán A-landsleiki og skorað tvö mörk en síðasti landsleikur hans var árið 2016.

Athugasemdir