Leicester City fær þrjár milljónir evra fyrir framherjann Fousseni Diabaté.
Diabaté verður 25 ára í október og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Trabzonspor, sem endaði í öðru sæti tyrknesku deildarinnar á síðustu leiktíð.
Diabaté gekk í raðir Leicester í janúar 2018 fyrir tvær milljónir evra og spilaði í heildina 19 leiki fyrir félagið, þar af 15 í ensku úrvalsdeildinni.
Diabaté spilaði síðast fyrir Leicester 5. desember 2018, í 1-1 jafntefli gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni.
Diabaté er hægri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað á vinstri kanti og í fremstu víglínu.
Athugasemdir