Toppslagurinn í Pepsi Max-deildinni færður aftur

Úr fyrri leiknum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr fyrri leiknum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Búið er að breyta aftur leiktíma á leik Vals og Breiðabliks í 16. umferð Pepsi Max-deildar kvenna.
Leikurinn átti upphaflega að fara fram á miðvikudaginn en í vikunni var honum frestað til föstudags.

Í dag var síðan tilkynnt að leikurinn fari fram laugardaginn 3. október á Origo-vellinum klukkan 17:00.
Valur er einu stigi á undan Breiðabliki en Blikar eiga leik til góða gegn botnliði KR.
Í fyrra mættust þessi lið í hálfgerðum úrslitaleik í næstsíðustu umferð deildarinnar og yfirgnæfandi líkur eru á að einnig verði um að ræða hálfgerðan úrslitaleik í ár.
Áður en að þessum leik kemur mætir Breiðablik liði ÍBV á morgun á meðan Valur heimsækir Fylki.