Senegalski framherjinn Mbaye Niang er genginn í raðir Bordeaux frá Rennes en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Niang er 26 ára gamall og spilaði með Rennes í þrjú ár þar sem hann skoraði 30 mörk í 92 leikjum.
Hann var ekki í myndinni hjá félaginu fyrir þessa leiktíð og ákvað Rennes því að rifta samningnum við leikmanninn.
Bordeaux var fyrst til að átta sig á stöðunni og hóf viðræður við Niang sem gerði tveggja ára samning með möguleika á að framlengja um annað ár.
Niang hefur einnig spilað fyrir Caen, Milan, Genoa, Torino, Watford og Montpellier á ferlinum.
Athugasemdir