Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. september 2021 14:47
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Átti sigurmark Hause að standa?
Kourtney Hause skoraði með skalla
Kourtney Hause skoraði með skalla
Mynd: EPA
Kortney Hause, varnarmaður Aston Villa, gerði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag en átti markið að standa?

Douglas Luiz tók hornspyrnu sem Hause stangaði í netið. Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, talaði um það eftir leikinn að markið átti ekki að standa.

Ollie Watkins, framherji Villa, var utan í David De Gea, markverði United, þegar skallinn kemur og hafði mögulega áhrif. Hann virtist vera fyrir innan þegar Hause skallar boltann.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið
Athugasemdir
banner
banner
banner