Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 25. september 2022 21:59
Brynjar Ingi Erluson
Al Wahda kaupir Allan frá Everton (Staðfest)
Allan gerði tveggja ára samning við Al Wahda
Allan gerði tveggja ára samning við Al Wahda
Mynd: Heimasíða Al Wahda
Brasilíski miðjumaðurinn Allan skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Al Wahda í Sameinuðu arabísku furstaríkjunum en félagið kaupir hann frá Everton.

Allan, sem er 31 árs gamall, kom til Everton frá Napoli fyrir tveimur árum og var lykilmaður í liðinu undir stjórn Carlo Ancelotti og Rafael Benítez.

Hann missti sæti sitt í liði Everton undir lok síðasta tímabils og hefur þá ekki fengið mínútu á þessari leiktíð.

Brasilíumaðurinn vildi komast frá félaginu sem fyrst og komst Al Wahda að samkomulagi við Everton um að fá hann strax í stað þess að bíða fram í janúar.

Everton samþykkti það og skrifaði hann í dag undir tveggja ára samning við Al Wahda.

Al Wahda er í 10. sæti efstu deildar eftir þrjá leiki með aðeins eitt stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner