Fotbolti.net
25.10.13 - 19:08
Elvar Geir Magnússon

Einar Bjarni gerði þriggja ára samning við Fram (Staðfest)

Einar og Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram.

Einar og Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fram.is

Einar Bjarni Ómarsson er orðinn leikmaður Fram en hann skrifaði áðan undir þriggja ára samning við félagið. Fótbolti.net greindi frá því í dag að Einar væri á leið í herbúðir Fram.
Af heimasíðu Fram:
Einar Bjarni Ómarsson sem lék með KV í 2. deildinni í sumar skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Fram. Einar Bjarni sem er 23 ára er örvfættur og getur bæði leikið í vörn og á miðju.

Hann lék 20 leiki með KV í sumar og skoraði í þeim 8 mörk. Hann var valinn besti leikmaður 2. deildar nú í haust af leikmönnum og þjálfurum deildarinnar.

Einar Bjarni varð íslandsmeistari með KR í 2. flokki en í meistaraflokki hefur hann einkum leikið með Gróttu auk KV.

Fram býður Einar Bjarna velkominn í Safamýrina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.