Fotbolti.net
25.10.13 - 19:37
Elvar Geir Magnússon

Eiríkur Ingi frá KF í Leikni (Staðfest)

Eiríkur Ingi í leik gegn Haukum í sumar.

Eiríkur Ingi í leik gegn Haukum í sumar.

Canon

Mynd: Guðný Ágústsdóttir

Leiknismenn hafa fengið til sín nýjan leikmann en Eiríkur Ingi Magnússon skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Breiðholtsliðið.

Eiríkur er fæddur 1991 og hefur verið lykilmaður hjá KF undandarin ár, þar sem hann er uppalinn.
Hann lék 20 leiki í sumar í 1. deildinni og hefur alls leikið rúmlega 80 deildaleiki með KF og KS/Leiftri í 1. og 2. deild.

„Eiríkur gegur leikið ýmsar stöður og ætti að nýtast Leikni vel á komandi árum. Hann leikur þó einn helst í bakverði og verður gaman að sjá kappann í bláu og rauðu næstu tvö árin að minnsta kosti,\" segir á heimasíðu Leiknis.

KF féll úr 1. deildinni á liðnu sumri en Leiknir hafnaði um miðja deild.

Heimild: Heimasíða Leiknis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.