25.10.13 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Rafn Markús tekur við Víði Garði (Staðfest)

Rafn Markús, Jón Ragnar Ástþórsson formaður Víðis og Árni Þór.

Mynd: Víðir Garði

Rafn Markús Vilbergsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Víði Garði í 3. deild.
Rafn Markús hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víði en hann hefur leikið með Njarðvík undanfarin ár.

,,Rafn er uppalinn Víðismaður og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Víði. Það er Víði því mikið fagnaðarefni að fá hann aftur í sínar raðir,\" segir í fréttatilkynningu frá Víði.
Árni Þór Ármannsson verður aðstoðarmaður Rafns en hann hefur einnig leikið með Njarðvík um áraraðir.
Bæði Rafn og Árni stefna á að spila líka með Víðismönnum í 3. deildinni.