Fotbolti.net
25.10.15 - 12:04
Magnús Már Einarsson

Tim Sherwood rekinn frá Aston Villa (Staðfest)

Game over.

Game over.

Canon

Mynd: Getty Images

Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, hefur fengið að taka pokann sinn eftir skelfilega byrjun liðsins á tímabilinu.

Aston Villa er í næstneðsta sæti í ensku úrvalsdeildinni en forráðamenn félagsins misstu þolinmæðina á Sherwood eftir 2-1 tap gegn Swansea á heimavelli í gær.
Hinn 46 ára gamli Sherwood tók við Aston Villa í febrúar á þessu ári og kom liðinu í bikarúrslit auk þess að bjarga því frá falli síðastliðið vor.

Byrjunin á þessu tímabili hefur hins vegar verið mjög slæm og staða Sherwood hefur verið í óvissu undanfarnar vikur.

David Moyes, þjálfari Real Sociedad, er talinn líklegastur sem næsti stjóri Villa en þeir Brendan Rodgers og Nigel Pearson hafa líka verið nefndir til sögunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.