Fotbolti.net
25.10.19 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Jón Dagur spáir í leiki helgarinnar á Englandi

Jón Dagur Þorsteinsson.

Jón Dagur Þorsteinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Gylfason var með fjóra rétta þegar hann spáði í leikina í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður AGF og U21 árs liðs Íslands, spáir í leikina að þessu sinni.


Southampton 0 - 1 Leicester (19:00 í kvöld)
Jamie Vardy setur eitt á 72. mín og heldur siglingu þeirra áfram.

Manchester City 4 - 0 Aston Villa (14:00 á morgun)
City skora snemma og þetta verður hundleiðinlegt að horfa á eftir það.

Brighton 1 - 1 Everton (14:00 á morgun)
Gylfi jafnar á 76. mín úr aukaspyrnu.

Watford 2 - 1 Bournemouth (14:00 á morgun)
Fyrsti sigur Watford á tímabilinu og þetta verður óvænt skemmtilegasti leikur umferðarinnar. Tvö rauð jafnvel og eitt víti.

West Ham 1 - 0 Sheffield United (14:00 á morgun)
Anderson cuttar inn og setur hann í fjær. Eini möguleiki Sheffield er ef þeir setja Ravel Morrison inn í liðið en ég sé það ekki gerast.

Burnley 0 - 2 Chelsea (16:30 á morgun)
Walk in the park fyrir Lampard og félaga. Tammy með 1 og Mount 1.

Newcastle 2 - 1 Wolves (14:00 á sunnudag)
Allan Saint með tvö í fyrri hálfleik og Wolves ná einu sárabótamarki inn í lokin.

Arsenal 2 - 3 Crystal Palace (16:30 á sunnudag)
Allt verður vitlaust eftir leik og Emery missir vinnuna. Zaha setur tvö og Benteke eitt.

Liverpool 4 - 1 Tottenham (16:30 á sunnudag)
Spurs alveg bensínlausir þessa dagana og Salah og Mane munu eyðileggja þá.

Norwich 0 - 1 Manchester United (16:30 á sunnudag)
Rashford setur hann snemma í seinni halfleik. Verður hundleiðingur leikur en Man Utd klára þetta.

Sjá fyrri spámenn:
Aron Einar Gunnarsson (7 réttir)
Pálmi Rafn Pálmason (6 réttir)
Sóli Hólm (5 réttir)
Arnór Sigurðsson (4 réttir)
Ágúst Gylfason (4 réttir)
Logi Bergmann Eiðsson (4 réttir)
Þórður Ingason (4 réttir)
Guðmundur Benediktsson (3 réttir)
Ingibjörg Sigurðardóttir (3 réttir)
Mane og Salah verða á skotskónum gegn Tottenham samkvæmt spánni hjá Jóni Degi.

Mane og Salah verða á skotskónum gegn Tottenham samkvæmt spánni hjá Jóni Degi.

Canon

Mynd: Getty Images

Rashford skorar sigurmark Manchester United ef spáin rætist.

Rashford skorar sigurmark Manchester United ef spáin rætist.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton10+1720
4Chelsea10+417
5Everton10+216
6Liverpool10+216
7Brentford10+715
8Bournemouth10+215
9Leeds10+214
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Crystal Palace10-128
19Man Utd9-57
20Sunderland10-106
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.