25.11.13 - 18:45
Ívan Guðjón Baldursson
Guy Whittingham rekinn frá Portsmouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Guy Whittingham hefur verið rekinn úr knattspyrnustjórastöðunni hjá Portsmouth eftir fund með Iain McInnes, forseta félagsins, Mark Catlin, framkvæmdastjóra, og Tony Brown, fjármálastjóra.
Whittingham var ráðinn fyrir ári og yfirgefur félagið í 18. sæti í fjórðu deild á Englandi.

Andy Awford, þjálfari unglingaliðsins, tekur við stjórn aðalliðsins tímabundið með aðstoð frá aðalliðsþjálfaranum Alan McLoughlin og sóknarmanninum margreynda David Connolly.
Portsmouth féll úr ensku þriðju deildinni á síðasta tímabili eftir að hafa hafið tímabilið með tíu refsistig.
Nú er liðið sex stigum frá fallsæti í fjórðu deildinni og eftir fjórða tapleikinn í röð ákvað stjórn félagsins að breytinga væri þörf.
,,Félagið vill þakka Guy fyrir starf sitt fyrir félagið á erfiðum tímum,\" segir í yfirlýsingu frá félaginu.
,,Við eigum mikilvægan leik gegn Southend United á þriðjudaginn og við erum einbeittir að honum.
,,Það verða ekki fleiri yfirlýsingar fyrr en eftir næsta leik.\"

Heimild: BBC