Fotbolti.net
25.11.13 - 14:01
Magnús Már Einarsson

Heimir tekur við íslenska landsliðinu árið 2016 (Staðfest)

Heimir tekur við íslenska landsliðinu árið 2016 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Heimir Hallgrímsson mun taka einn við sem landsliðsþjálfari Íslands eftir EM 2016. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi nú rétt í þessu.
,,Við höfum farið yfir þessi mál í stjórn knattspyrnusambandsins og horfum lengra fram á veginn en við gerum áður. Við höfum ákveðið að þeir þjálfi saman A-landslið karla í næstu undankeppni. Þeir munu jöfnum höndum þjálfa liðið,\" sagði Geir Þorsteinsson formaður KSÍ.

,,Enn fremur höfum við samið við Heimi um að hann taki við liðinu stýri því í undankeppni HM 2018.\"

Heimir, sem er 46 ára, var aðstoðarþjálfari Lars Lagerback í undankeppni HM 2014 og þeir félagar munu stýra liðinu saman í undankeppni HM 2016.

Lars ætlar líklega að hætta í þjálfun eftir EM 2016 og þá mun Heimir taka við liðinu.

Heimir þjálfaði ÍBV áður en hann tók við sem aðstoðarþjálfari landsliðsins fyrir ári síðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.