Fotbolti.net
25.11.13 - 13:59
Magnús Már Einarsson

Heimir verður landsliðsþjálfari með Lagerback (Staðfest)

Heimir tekur við árið 2016

Af fréttamannafundinum í dag.

Af fréttamannafundinum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lars Lagerback og Heimir Hallgrímsson munu stýra íslenska landsliðinu í sameiningu í undankeppni EM 2016.

Í undankeppni HM 2014 var Lars þjálfari og Heimir aðstoðarþjálfari en nú munu þeir stýra liðinu í sameiningu. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ nú rétt í þessu.
,,Ég hef þau ánægjulegu tíðindi að við höfum undirritað samninga við Lars og Heimi að halda áfram með landsliðið,\" sagði Geir Þorsteinsson formaður KSÍ á fréttamannafundi í dag.

,,Ég vil byrja á að þakka þeim fyrir síðustu undankeppni og þann frábæra viðsnúning sem hefur verið undir þeirra stjórn. Við stefnum að sjálfsögðu hærra og horfum björtum augum til framtíðar.\"

Heimir tekur við árið 2016:
Lars og Heimir munu eins og fyrr segir stýra liðinu í sameiningu en Heimir tekur við árið 2016.

,,Við höfum farið yfir þessi mál í stjórn knattspyrnusambandsins og horfum lengra fram á veginn en við gerum áður. Við höfum ákveðið að þeir þjálfi saman A-landslið karla í næstu undankeppni. Þeir munu jöfnum höndum þjálfa liðið,\" sagði Geir.

,,Enn fremur höfum við samið við Heimi um að hann taki við liðinu stýri því í undankeppni HM 2018.\"
Heimir verður landsliðsþjálfari með Lagerback (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.