Fotbolti.net
25.11.20 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Alderweireld frá næstu vikur

Alderweireld frá næstu vikur
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, staðfesti á fréttamannafundi í dag að varnarmaðurinn Toby Alderweireld missir af næstu leikjum vegna meiðsla.

„Toby er með vöðvameiðsli en þau eru ekki eins alvarleg og við héldum í fyrstu," segir Mourinho.

„Við héldum fyrst að hann yrði frá í mánuði en ég myndi segja að hann verði frá í tvær til fjórar vikur. Hann var að spila mjög vel og við munum sakna hans en berjumst með það sem við höfum."
Tottenham er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, með betri markatölu en Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.