Bodö/Glimt er í bílstjórasætinu um efsta sæti C-riðils í Sambandsdeildinni fyrir lokaumferðina.
Roma er í 2. sæti stigi á eftir Bodö. Roma vann öruggan 4-0 sigur gegn Zorya í kvöld. Ítalska liðið fór með tveggja marka forystu inn í hálfleik.
Tammy Abraham fyrrum leikmaður Chelsea skoraði síðan tvö mörk í síðari hálfleik.
Það seinna var einkar glæsilegt en hann snéri með bakið í markið og ákvað að taka bakfallsspyrnu og boltinn steinlá í netinu.
Markið má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir