Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 25. nóvember 2022 15:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Hollands og Ekvador: De Ligt bekkjaður
De Ligt tekur sér sæti á bekknum.
De Ligt tekur sér sæti á bekknum.
Mynd: EPA
Seinni leikur dagsins í A-riðli hefst klukkan 16:00. Þá mætast Holland og Ekvador í uppgjöri liðanna sem unnu sína leiki í 1. umferð riðlakeppninnar.

Bæði lið unnu 2-0 sigra, Ekvador unnu heimamenn í Katar í opnunarleiknum og Holland vann Senegal.

Þrjár breytingar eru á liði Hollands; Matthijs de Ligt, Steven Berghuis og Vincent Janssen taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Davy Klaassen, Jurrien Timber og Teun Koopmeiners.

Ein breyting er á liði Ekvador, Jackson Porozo kemur inn fyrir Romario Ibarra. Ekvador fer úr fjögurra manna vörn í fimm manna.

Holland:
Noppert, Dumfries, Ake, Timber, van Dijk, Blind, de Jong, Koopmeiners, Klaassen, Gakpo, Bergwijn.

Ekvador:
Galindez; Preciado, Hincapie, Porozo, Torres, Estupinan; Caicedo, Mendez; Plata, Enner Valencia, Estrada

Sjá einnig:
Guy Smit spáir í Holland - Ekvador
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner