Fotbolti.net
25.11.26 - 21:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Erfitt að hugsa sér verri dómaraákvörðun árið 2026"

„Erfitt að hugsa sér verri dómaraákvörðun árið 2026"
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Leikmenn Man Utd voru allt annað en sáttir þegar Youri Tielemans fékk að líta gula spjaldið fyrir brot á Goncalo Inacio áður en Amad Diallo setti boltann í netið.

VAR gat ekki stigið inn í þar sem dómarinn flautaði áður en Amad skoraði.

Sérfræðingar á Sky Sports eru undrandi yfir dómnum. Í fyrsta lagi náði Tielemans boltanum og í öðru lagi virtist þetta alls ekki verðskulda gult spjald.
„Þetta er fáránleg ákvörðun. Það er nákvæmlega ekkert að þessari tæklingu," sagði Pete Gill.

„Ég velti því fyrir mér að hve miklu leyti viðbrögð leikmanns Sporting við því að Tielemens vann boltann höfðu áhrif á dómarann. Ég velti því fyrir mér hversu mikið dómaraheimurinn gerir sér grein fyrir því að því meira sem leikrænir atburðir hafa áhrif á hann, því meira mun þetta halda áfram. Áhrifavaldar eru líka slæmar fréttir í fótbolta.“

„Það er erfitt að hugsa sér verri dómaraákvörðun árið 2026. Það segir sitt," sagði Zinny Boswell.

„Hræðileg ákvörðun. Pochettino er trylltur. Ekki séns að þetta sér gult spjald. Tielemans vann boltann. Hann fór í gegn og fóturinn fór aðeins í Inacio. Þegar hlutirnir eru gegn þér er allt gegn þér," sagði Clinton Morrison.

Staðan er 1-1 en Bruno Fernandes jafnaði úr vítaspyrnu strax í upphafi seinni hálfleiks eftir að Luis Suarez hafði komið Sporting yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.