25.11.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjaði að þjálfa þegar hann var 14 ára gamall

Bjarni er leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar í deildakeppni hér á landi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni á sínum yngri árum.

Mynd: Jóhann G. Kristinsson

Bjarni Jóhannsson skýrði frá því fyrr í haust að nú væri þjálfaraferli hans endanlega lokið. Bjarni þjálfaði meistaraflokkslið í fótbolta nær samfleytt frá 1983 til 2025 og er leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar í deildakeppni hér á landi.
Í pistli hér á Fótbolta.net á dögunum skrifaði Víðir Sigurðsson um tengingu Bjarna við fótboltann á Austurlandi en heimaslóðir Bjarna eru austur í Neskaupsstað.
Hægt er að nálgast pistilinn neðst í fréttinni en hann er fyrir áskrifendur Fótbolta.net. Fyrsta vikan í áskrift er frí.
Þú getur keypt áskrift með því að smella hérna.

Bjarni er eini Íslendingurinn sem hefur farið yfir 600 leiki sem þjálfari í deildakeppni Íslandsmótsins. Þar fyrir utan eru bikarleikir, Evrópuleikir ásamt öðrum mótum þannig að heildarleikirnir á ferlinum nálgast þúsundið. Hann byrjaði að þjálfa þegar hann var aðeins 14 ára gamall.
Bjarni er Norðfirðingur, fæddur árið 1958 í Neskaupstað og ólst þar upp. Hann kveðst ekki gera sér fulla grein fyrir því hvernig og hvers vegna hann fór að þjálfa til að byrja með en fyrstu verkefnin fékk hann 14 ára gamall þegar honum var falið að sjá um yngstu flokkana í fótbolta hjá Þrótti í heimabænum árið 1972. Sá sem þetta skrifar er líka Austfirðingur og man einmitt fyrst eftir Bjarna þetta sama sumar eftir að hafa mætt honum í leik í 4. flokki á Norðfjarðarvelli, en þar var hann aðalmaðurinn í gulklædda liðinu. Keppnisbúningur Þróttar var gulur frá toppi til táar.
„Ég veit ekki – sennilega hefur alltaf blundað einhver leiðtogi í mér. Sem krakki reyndi ég auðvitað að taka þátt í öllu sem kostur var á og það var svo sem ekki um auðugan garð að gresja á Norðfirði. Það var ekki einu sinni íþróttahús í bænum fyrstu árin sem ég æfði fótbolta, ég var 10-12 ára þegar það var tekið í notkun. En ég man að ég tók að mér 14 ára gamall að þjálfa unga drengi í fótbolta, og það var fyrst og fremst innanhúss um veturinn. Líklega hef ég verið tilbúinn í þetta, þorað að taka af skarið og axla ábyrgð."
„Á menntaskólaárunum þjálfaði ég alltaf yngri flokka hjá Þrótti ásamt því að spila með meistaraflokknum frá árinu 1975 þegar ég var 17 ára. Eftir að ég fór í íþróttakennaraskólann nokkrum árum síðar var fastur liður að vera með yngri flokkana fyrir austan á sumrin. Ég var því alltaf annað hvort að aðstoða eða þjálfa, og það var ávallt skortur á slíkum starfskröftum fyrir austan á þessum tíma. Þetta var ekki launað starf á þessum fyrstu árum, og sjálfur borgaði maður heldur engin æfingagjöld þegar maður var yngri,“ segir Bjarni um uppvaxtarárin.
Hægt er að nálgast pistlinn í heild sinni hér fyrir neðan.

TENGT EFNI
Bjarni Jó 1: Krafturinn í Austfjarðafótboltanum mótaði mig

Bjarni á sínum yngri árum.

Mynd: Jóhann G. Kristinsson