Fotbolti.net
25.11.26 - 20:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Settu met sem enginn vill eiga

Settu met sem enginn vill eiga
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Slavia Prag tapaði 1-0 gegn Villarreal í Meistaradeildinni í kvöld. Liðið hefur spilað 24 leiki í Evrópukeppnum án þess að vinna sem er met.

AEK fór í gegnum 23 leiki í röð án þess að vinna frá 1989-2006 og Steaua Bucharest fór einnig í gegnum 23 leiki án þess að vinna frá 2006-2013.
Slavia Prag hefur ekki unnið leik í Evrópukeppni síðan liðið lagði Steaua árið 2007. Það var fyrsti leikur liðsins í Meistaradeildinni.

Tajon Buchanan skoraði eina mark Villarreal í kvöld þegar hann skoraði með viðstöðulausu skoti úr teignum í seinni hálfleik.

Villarreal er í 22. sæti með sex stig eftir fimm umferðir en Slavia er í 35. sæti með eitt stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.