25.11.26 - 14:34
Elvar Geir Magnússon
Alfreð um Frey og Swansea: Árangri fylgir áhugi

Freyr Alexandersson og Alfreð Finnbogason.

Mynd: Samsett

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Alexandersson.

Mynd: EPA

Alfreð Finnbogason, yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg, segir það ekki koma sér á óvart að önnur félög sýni Frey Alexanderssyni, þjálfara félagsins, áhuga.
Swansea, sem er í 8. sæti ensku Championship-deildarinnar, vill ráða Frey til starfa og viðræður hafa staðið yfir. Samhliða því býr Freyr lið Rosenborgar undir gríðarlega mikilvægan leik gegn Molde.
Alfreð hefur ekki veitt viðtöl undanfarna daga en hann ræddi við fjölmiðla í Noregi í dag. TV 2 spurði hann hvort mögulegt væri að Freyr myndi hætta hjá félaginu áður en tímabilinu er lokið?
„Það er staða sem við erum ekki að búast við, ekki eitthvað sem við erum opnir fyrir," svaraði Alfreð,

TENGT EFNI
Meiri líkur en minni á að Freyr stýri Rosenborg um helgina
„Við þurfum að horfast í augu við hvar við erum í fótboltapíramídanum. Þegar menn standa sig vel hjá Rosenborg þá skapast áhugi. Þetta er ein hlið af góðum árangri. Leikmenn, þjálfarar og allir hjá félaginu vekja athygli. Það er ekki óvænt að það sé áhugi á Frey."
Alfreð segir Frey hafa verið mjög opinn og hreinskilinn í samtölum sínum við félagið. Rosenborg á þrjá leiki eftir á tímabilinu og er öruggt með Evrópusæti ef þeir leikir vinnast.

Heimild: TV 2

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Alexandersson.

Mynd: EPA