25.11.26 - 13:37
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Viðars ráðinn aðstoðarþjálfari FH (Staðfest)

Bjarni Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: FH

Jóhannes Karl og Árni Guðna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Þór Viðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóhannesar Karls Guðjónssonar hjá meistaraflokki FH. Auk þess mun Bjarni vera aðalþjálfari 2. flokks.
Hann tekur við aðstoðarþjálfarahlutverkinu af Árna Frey Guðnasyni sem hefur tekið að sér starf hjá yngri flokkum félagsins.
„FH hefur alltaf skipt mig miklu máli og það er mikill heiður að fá að taka að mér þetta hlutverk. Ég hlakka til að vinna með Jóa og teyminu að því að ná árangri með meistaraflokkinn og að vinna með strákunum í 2. flokki, sem eru framtíð félagsins,“ segir Bjarni Þór í tilkynningu FH.

Tilkynning FH:
Bjarni Þór Viðarsson nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla – Árni Freyr Guðnason tekur við nýju hlutverki í yngri flokkum.
Knattspyrnudeild FH hefur gengið frá breytingum á þjálfarateymi félagsins fyrir komandi tímabil.
Bjarni Þór hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og verður hægri hönd Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Hann tekur jafnframt við sem aðalþjálfari 2. flokks karla með það að markmiði að styrkja tengingu flokkanna og samræma leikstíl þeirra.
Bjarni er uppalinn FH-ingur. Hann lék sem atvinnumaður í Englandi, Hollandi, Belgíu og Danmörku, auk þess að leika með A-landsliði Íslands. Hann var stór hluti af Íslandsmeistaraliði FH árin 2015 og 2016 áður en alvarleg meiðsli bundu enda á leikmannaferilinn.
„Við erum mjög ánægð með að fá Bjarna inn í teymið. Hann þekkir félagið, menninguna og kröfurnar sem fylgja því að spila fyrir FH. Á sama tíma viljum við þakka Árna kærlega fyrir hans framlag sem aðstoðarþjálfari og væntum mikils af honum í nýju starfi,“ segir Jón Erling Ragnarsson, formaður meistaraflokksráðs karla.
Árni Freyr færir sig yfir í nýtt hlutverk sem yfirmaður afreks- og grasrótarstarfs og ber ábyrgð á 3.–4. flokki karla og 2.–3. flokki kvenna. Árni þekkir yngri flokka FH vel, enda var hann áður yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Hann mun leiða vinnu við að skapa skýra og samfellda leið fyrir efnilegustu leikmenn félagsins upp í meistaraflokk, bæði hjá konum og körlum.
„Ég óskaði sjálfur eftir því að færa mig til innan félagsins, enda brenn ég fyrir því að hjálpa ungum leikmönnum að bæta sig. FH hefur alið upp marga frábæra leikmenn og markmiðið er að þeir verði enn fleiri. Ég hlakka til að vinna með þjálfurunum, leikmönnunum og foreldrunum að því,“ segir Árni Freyr Guðnason.
Knattspyrnudeild FH býður Bjarna velkominn til starfa og óskar Árna velfarnaðar í nýju hlutverki innan félagsins.