Fotbolti.net
25.11.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mourinho: Án vafa besti miðjumaður í heimi

Mourinho: Án vafa besti miðjumaður í heimi
Canon

Mynd: EPA

Eftir leik Real Madrid og PSV í Meistaradeildinni í gær ræddi Jude Bellingham, leikmaður Real, við fjölmiðla. Hann var spurður út í framfarir sínar og hann sagði að ástæðan væri einföld, hún væri Jose Mourinho.

Mourinho tók við sem stjóri Real í sumar og hefur enski miðjumaðurinn spilað frábærlega undir hans stjórn. Hann er án vafa einn besti miðjumaður í heimi og portúgalski stjórinn er á því að Bellingham sé einfaldlega sá besti í heiminum í dag.
„Það er vel gert af honum að segja að ég beri ábyrgð á framförum hans, en ég er ekki á þeirri skoðun," sagði Mourinho eftir leikinn.

„Ég tel að sá sem á mestan þátt í því hver Jude er í dag sé hann sjálfur, ásamt liðsfélögum hans. Ég reyni að leggja mitt af mörkum. Hann er algjörlega einstakur leikmaður sem er með allt vopnabúrið. Hann hefur líkamlega burði, tækni, taktískan skilning á leiknum, metnað... Í dag – þó vissulega ekki einn síns liðs – breytti hann gangi leiksins," sagði Mourinho en Bellingham kom inn á í hálfleik þegar PSV leiddi 0-1. Lokatölur leiksins urðu 5-1 Real í vil.

„Að mínu mati er hann, án nokkurs vafa, besti miðjumaður í heimi. Þar að auki getur hann spilað sem „tía“, sem „átta“, í kerfi með tveimur djúpum miðjumönnum eða einum... Þess vegna sagði ég, þegar rætt var um Gullboltann (Ballon d’Or), að það væri með ólíkindum að hann væri ekki á meðal tíu efstu. Hann er algjörlega einstakur leikmaður."

„Hann er leiðtogi af náttúrunnar hendi því hann gerir mjög miklar kröfur til sjálfs sín. Þetta sést á hverjum degi, bæði á æfingum og í leikjum. Þegar illa gengur getur hann ekki leynt vonbrigðum sínum, en hann bregst við þeim með því að leggja hart að sér. Hann sýnir leiðtogahæfileika sína með því að koma hlutunum í gang. Eftir að Jude kom inn á völlinn fóru sóknarmennirnir að virka á allt annan hátt,"
sagði Mourinho.

Í spilaranum hér að neðan má sjá það helsta úr leiknum í gær.

Mourinho: Án vafa besti miðjumaður í heimi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.