Fotbolti.net
25.11.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aron Jó: Ævintýralega sáttur við stjórn Vals

Ég held að ég hafi aldrei verið jafn mótiveraður að vera í Val og þegar ég heyrði að þeir vildu ekki hafa mig

Ég held að ég hafi aldrei verið jafn mótiveraður að vera í Val og þegar ég heyrði að þeir vildu ekki hafa mig

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrrum atvinnumaðurinn og bandaríski landsliðsmaðurinn, Aron Jóhannsson, lagði skóna formlega á hilluna á dögunum þegar samningur hans við Val var að renna út. Aron spilaði sinn síðasta leik á ferlinum í september 2025.

Eftir tímabilið 2025 tilkynnti Valur að starfskrafta Arons væri ekki óskað, en hann var áfram á samningi. Hann var því ekki hluti af Valsliðinu á síðasta ári samningsins.

Aron var til viðtals í hlaðvarpsþættinum Sjöan þar sem hann ræddi við Jóhann Berg Guðmundsson og Hörð Snævar Jónsson.
„Höldum áfram að greiða launin en starfskraftanna er ekki óskað“
TENGT EFNI

„Höldum áfram að greiða launin en starfskraftanna er ekki óskað“

Kom heim eftir að hafa meiðst í Poznan
„Það voru allir sem sögðu við mig að vera úti eins lengi og þú getur. Eftir Pólland þá að koma alveg upp Grikkland, Kýpur og Tyrkland og einhver svona lönd. En þetta var búið að vera alltaf start-stop með meiðsli og fjölskyldan væri að koma með og eitthvað svona. Þannig að við ákváðum bara að kýla á þetta og fara heim og kynnast því líka bara að vera heima. Ég var búinn að vera í burtu í tólf ár eða eitthvað," segir Aron. Hann hafði verið á mála hjá Lech Poznan í Póllandi áður en hann samdi við Val.

Aron talaði um að með heimkomunni væri hann að hefja lífið eftir fótboltann. Hann sagði að munurinn á fagmennskunni í kringum Val og Hammarby, þar sem hann hafði spilað áður en hann fór til Póllands, væri ekki mikill.

„Mesti munurinn að um helgar voru 30 þúsund manns á vellinum hjá Hammarby og þúsund hjá Val."

Heimir Guðjónsson var þjálfari Vals þegar Aron kom til félagsins, fyrst var Srdjan Tufegdzic aðstoðarþjálfari og svo kom Helgi Sigurðsson í það hlutverk. Óli Jó tók við af Heimi og fyrir tímabilið 2023 tók Arnar Grétarsson við liðinu.

„Æfingakúltúrinn og allt svona var mjög professional. Svo kemur Addi Grétars og tekur við, hann náttúrulega búinn að vera í þessum heimi og kann alveg að leggja upp æfingar og allt svoleiðis."

Hjá Val var Aron að æfa með leikmönnum sem voru í öðrum störfum.

„Það er fullkomlega eðlilegt. Það er mjög erfitt að halda uppi atvinnumannaumhverfi á Íslandi og sérstaklega þegar kannski sumir eru með yfir milljón á mánuði í laun og svo eru aðrir með 200 þúsund. Það er mikill munur, en ef Ísland vill fara á næsta skref, ef þessi lið vilja gera það, þá þurfa þau einhvern veginn að geta búið til í svona professional umhverfi," sagði Aron.

Stjarnan að fara 20 ár aftur í tímann
Hann var spurður út í Stjörnuna og Rúnar Pál sem vill æfa seinni part dags.

„Mér finnst sú nálgun vera að fara bara 20 ár aftur í tímann. Ekkert endilega að vera æfa kl. 4-5 á daginn, heldur meira það sem hann var að tala um að fara berjast og hlaupa og allt svoleiðis. Það eru alveg gildar pælingar ef menn vilja gera það, en svo mætirðu Víking og KR og á mínum tíma Breiðablik. Ég man þegar við vorum að spila á móti Víkingi þegar Arnar Gunnlaugs var búinn að móta þessa stefnu hjá þeim. Ég var allt í einu dekkandi fjóra á miðjunni, menn að hlaupa í einhver svæði og yfirmanna þau. Ísland er komið þangað að það er ekki bara hægt að berjast og leggja sig fram til að vinna titilinn."

Aldrei verið jafn mótiveraður að vera í Val
Aron var næst spurður út í endalokin hjá Val. Var hann svekktur?

„Ég var búinn að heyra af þessu í einhvern tíma að þeir ætluðu að losa sig við einhverja menn og eitthvað svona. Það hefur kannski einkennt minn feril að vera með mótþróaröskun, þegar einhver segir að ég geti ekki gert eitthvað, þá vill maður gera það. Ég held það sé gott. Til dæmis hjá Bremen og AGF, ef maður væri ekki svona þrjóskur og fastur á sínu þá hefði maður bara hætt og farið aftur heim í faðm fjölskyldunnar. Ég held að ég hafi aldrei verið jafn mótiveraður að vera í Val og þegar ég heyrði að þeir vildu ekki hafa mig."

„En svo er þetta náttúrulega bara skrýtið hvernig var farið að þessu og ég talaði náttúrulega við stjórnina áður, fyrir vetrarfríið. Þá segja þeir að þetta sé ekkert svona, ég sé með samning áfram og þeir séu spenntir að fá mig. Svo var ég að æfa mikið á Hlíðarenda í fríinu, er þá tekinn á fund og þeir segja að ég megi ekki mæta á æfingu. Ég spyr náttúrulega af hverju. Þeir sögðu að það væri búið að taka ákvörðun um að ég fengi ekki að spila mínútu á næsta ári. Ég vildi vita af hverju og það var bara búið að taka þessa ákvörðun. Ég fann að það var ekkert hægt að snúa því við. Ég bauðst líka til þess að vera áfram sem þriðji aðstoðarþjálfari eða framherjaþjálfari eða eitthvað, þurfti að fara að hugsa um eitthvað eftir ferilinn. En þeir vildu gefa einhverjum öðrum pláss,"
sagði Aron.

Jóhann Berg skaut þá inn í: „Og héldu áfram að borga þér, þetta er örugglega slappasta ákvörðun sem ég hef á ævinni heyrt. Af hverju ekki að nýta það að þú sért á samningi og þú klárar þetta með reisn."

„Ef ég er svona ómögulegur þá tæki hann bara ákvörðunina"
Aron tók þá aftur til máls: „Það sem maður svona pælir í er af hverju fær þá ekki bara þjálfarinn að taka þessa ákvörðun? Ég átti mjög gott spjall við Hemma (Hermann Hreiðarsson, þáverandi þjálfara Vals) og mér leið allavegana á spjallinu við hann að hann vildi hafa mig áfram. Af hverju leyfir hann mér ekki að æfa í 2-3 mánuði og ef ég er svona ómögulegur eins og stjórnin vill meina, þá tæki hann bara ákvörðunina."

„Ég held að ef að hann hefði fengið að taka þá ákvörðun um að leyfa mér að vera áfram þá hefði hann áttaði sig á því að ég er ekki svona mikið fífl eins og allavega einhverjir vilja meina."


Er ég þá að vera vondur?
Aron var spurður af hverju hann hefði fengið einhvern stimpil á sig. Vísað var í orð Alberts Brynjars Ingasonar í Dr. Football sem hafði talað við marga leikmenn Vals og enginn hefði upplifað að vesen hefði verið á Aroni.

„Ég er með miklar skoðanir, mjög kröfuharður. Ég held að Albert hafi talað við einhverja leikmenn og margir hafi sagt að ég geti verið erfiður. En ekki eitthvað vandamál eins og var kannski teiknað upp. Ég held að það sé alveg auðséð núna eftir þetta tímabil að ég hafi ekki verið vandamálið. Hvað enduðu þeir í, 8. sæti?"

„Undanfarin ár er ég búinn að vera mikið í því að reyna að hjálpa mönnum að verða betri. Ég veit ekki hversu marga leiki með Val ég er búinn að horfa á eftir leikina, koma með klippur fyrir hina og þessa leikmenn inn í klefa til þess að reyna að hjálpa okkur öllum að verða betri. Ég held það sé meira kannski það sem enginn hefur heyrt nema leikmenn Vals og þú veist. Ég er búinn að eyða ég veit ekki hversu mörgum klukkutímum af minni ævi að klippa einhver vídeó og klippur til að hjálpa okkur að vera betri í uppspili og klára færi og hvar menn eiga að staðsetja sig inni í boxi og eitthvað svona."

„En svo kannski kemur að því að við erum komnir út á völl, ég er búinn að hrósa segjum bara Jóa sjö sinnum, en svo þegar hann hleypur ekki til baka einu sinni og öskra á hann að drulla sér til fokking baka, er ég þá að vera vondur? Það er bara hluti af leiknum. Við erum kannski búnir að fara yfir það að þegar pressan kemur frá þessari hlið þá þarftu að senda á vinstri fótinn minn. Ef við erum búnir að fara yfir það í viku, Jói sendir á hægri fótinn minn og ég tapa boltanum og ég öskra á Jóa að senda á fokking vinstri fótinn minn svo ég geti leyst þetta almennilega. Er ég þá að vera vondur eða er ég að reyna hjálpa hinum?"


Jói Berg skaut inn í að ef íslenskur fótbolti ætlar að fara lengra þá þurfi svona karaktera og sem félag verði að vera hægt að eiga við svona karaktera. „Það er öðruvísi ef menn eru virkilega að eyðileggja fyrir liðinu eða klúbbnum, en þú ert alls ekki þannig. Ég held það sé smá í íslenskum kúltúr, það þarf að hafa menn sem ýta og ýta og ýta. Svo er það klúbburinn sem þarf að vinna með það."

Aron tók aftur til máls: „Það sem ég held að sé aðalatriðið, þegar maður er inni í klefa og æfir með þessum strákum 5-6 daga vikunnar þá byggir maður upp ákveðið traust. Ef ég tek Jóa aftur sem dæmi, við byggjum upp það traust að við erum alltaf að fara yfir klippur saman fyrir leiki og æfingar. Þá byggist upp samband og má segja við Jóa „ertu að fokking grínast" (þegar hlutirnir eru ekki nógu vel gerðir). En ef Jói er að koma á fyrstu æfinguna sína og í fyrsta leikinn og gerði sömu mistök, þá myndi ég aldrei segja það, þá myndi ég koma með ábendingar um að gera þetta öðruvísi næst. Ég held að fólk fatti ekki alveg að það sé mikið á bakvið þetta, allt á bakvið þetta var til að gera okkur betri og til að láta okkur vinna."

„Það er alveg auðséð ef farið er í gegnum tímann minn hjá Val og munurinn skoðaður með mig í liðinu og svo ekki. Punktasöfnunin er töluvert betri með mig í liðinu. Ég sagði alltaf við strákana, ef ég geri mistök þá verður líka að láta mig vita af því, það líka að bera ábyrgð."

„Ég tuða líka mikið þegar mér líður eins og við þurfum að breyta um kerfi, t.d. í 15 m/s, þá er ég fyrstur að tala við þjálfarann og leggja til breytingar. Ef þjálfarinn segir bara nei, þá mun ég samt aðeins ýta, það sé kannski ekki hægt að halda boltanum á jörðinni og þurfi að sparka langt."


Þakklátur Val fyrir að taka ákvörðunina fyrir sig
„Eftir á að hyggja er ég nokkuð viss um að ég hefði haldið áfram að spila fótbolta. Síðustu 2-3 ár í Val, það er búið að vera mjög mikið af meiðslum. Ég held það séu kannski bara Einar sjúkraþjálfari hjá Val og Bryndís konan mín sem vita hvað ég er búinn að þurfa að ganga í gegnum. Þegar Gylfi kom í Val þá tók ég 20 leiki þar sem ég gat hvorki sparkað í boltann með vinstri né hægri, ekki fastar en svona 50%. Maður vaknaði alla daga með hásinavesen, maður er búinn að leggja helvítið mikið á sig fyrir Val og smá vonbrigði að enda þetta svona."

„Þegar ég lít til baka er ég ævintýralega sáttur við stjórn Vals að leyfa mér að sleppa við þetta tímabil því ég væri sennilega raddlaus eftir að vera búinn að spila með þeim allt þetta ár og horfa á hvað er búið að gerast þarna,"
sagði Aron og Hörður Snævar skaut inn í að Aron hefði í staðinn fengið að vera launahæsti kylfingur landsins.

„Ég er þakklátur Val fyrir að þeir hafi tekið þessa ákvörðun fyrir mig af því ég er þannig týpa að ég hefði þjösnast áfram, sennilega fengið annan samning og endað á því að vera borinn út af," sagði Aron.

Hann starfar í dag hjá Stellar umboðsskrifstofunni.

Þeir sögðu að það væri búið að taka ákvörðun um að ég fengi ekki að spila mínútu á næsta ári.

Þeir sögðu að það væri búið að taka ákvörðun um að ég fengi ekki að spila mínútu á næsta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron veltir því fyrir sér af hverju Hemmi fékk ekki að taka ákvörðunina.

Aron veltir því fyrir sér af hverju Hemmi fékk ekki að taka ákvörðunina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Jó: Ævintýralega sáttur við stjórn Vals
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron lék á sínum meistaraflokksferli með Fjölni, AGF, AZ, Werder Bremen, Hammarby, Lech Poznan og Val.

Aron lék á sínum meistaraflokksferli með Fjölni, AGF, AZ, Werder Bremen, Hammarby, Lech Poznan og Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var bannað að mæta á æfingar eftir tímabilið 2025.

Var bannað að mæta á æfingar eftir tímabilið 2025.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron og Jóhann Berg spiluðu saman hjá AZ Alkmaar og áður hjá Breiðabliki.

Aron og Jóhann Berg spiluðu saman hjá AZ Alkmaar og áður hjá Breiðabliki.

Canon

Mynd: Twitter síða AZ Alkmaar

Aron Jó: Ævintýralega sáttur við stjórn Vals
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland er komið þangað að það er ekki bara hægt að berjast og leggja sig fram til að vinna titilinn

Ísland er komið þangað að það er ekki bara hægt að berjast og leggja sig fram til að vinna titilinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í stúkunni að fylgjast með í sumar.

Í stúkunni að fylgjast með í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kynntur sem leikmaður Vals í nóvember 2021.

Kynntur sem leikmaður Vals í nóvember 2021.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Jó: Ævintýralega sáttur við stjórn Vals
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Jó: Ævintýralega sáttur við stjórn Vals
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.