Fotbolti.net
25.11.26 - 09:45
Brynjar Ingi Erluson

Kompany: Eðlilegt að það sé ekki alltaf fullkomin ró í kringum okkur

Jamal Musiala

Jamal Musiala

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, var spurður hvort umræðan í kringum Jamal Musiala væri farin að hafa áhrif á leikmanninn, en hann vildi ekki fara of djúpt í málið.
Kom með óþarfa ummæli um Musiala
TENGT EFNI

Kom með óþarfa ummæli um Musiala

Musiala greindist með störuflog í sumar og hefur Bayern síðan gert sitt besta til að hjálpa honum að ná fullri heilsu.

Félagið hefur leitað til fjölmargra sérfræðinga í von um að finna lyf sem henta honum sem best og hafa sem minnst áhrif á frammistöðu hans á vellinum. Það hefur þó gengið brösuglega og Musiala ekki getað spilað jafn mikið og hann hefði sjálfur viljað.

Uli Hoeness, Karl-Heinz Rummenigge og Jan-Christian Dreesen, stjórnarmenn Bayern, hafa hins vegar sett mikinn þrýsting á Musiala í gegnum fjölmiðla og sagt að hann þurfi að semja við félagið um launalækkun.

Musiala skrifaði undir nýjan fimm ára samning á síðasta ári og þénar um 25 milljónir evra á ári.

Stjórnarmennirnir hafa sagt að staðan komi illa niður á Bayern, sem þurfi að greiða Musiala full laun þrátt fyrir að hann glími við heilsufarsvandamál og geti ekki skilað hundrað prósenta framlagi á vellinum.

Það hefur vakið töluverða furðu að stjórnarmenn félagsins skuli tjá sig með þessum hætti og setja enn meiri pressu á leikmann sem er þegar að glíma við erfiða stöðu.

Bayern hefur þó ekki rætt við Musiala um launalækkun og slíkar viðræður eru ekki á dagskrá eins og staðan er núna.

Lothar Matthaus, fyrrum leikmaður Bayern og þýska landsliðsins, er meðal þeirra sem hafa gagnrýnt stjórnarmennina harðlega fyrir ummæli þeirra.

Vincent Kompany var spurður hvort umræðan hefði haft áhrif á Musiala, en þjálfarinn vildi ekki fara of djúpt í málið og kaus að svara af yfirvegun.

„Það er eðlilegt að það sé ekki alltaf fullkomin ró í kringum okkur. Við erum líka bara manneskjur, en eins og ég hef sagt frá upphafi þá erum við svolítið í okkar eigin búbblu. Það hjálpar okkur á svona stundum. Við einbeitum okkur að næsta andstæðingi og verkefnunum sem eru fram undan. Þannig náum við að halda okkar eigin jafnvægi.“

„Ég skil líka að þegar svona mál koma upp nýta blaðamenn tækifærið til að ræða þau. Það er alveg eðlilegt, en það má ekki gleyma því hversu mikil reynsla og ró er innan þessa félags. Svona aðstæður eru einfaldlega hluti af atvinnumannafótboltanum.“

„Þetta fylgir því að vera hjá stórliði. Við vitum hvernig við eigum að takast á við svona mál, höfum okkar eigin leiðir til þess og höldum ró okkar í gegnum allt ferlið. Þegar öllu er á botninn hvolft vitum við að það sem gerist inni á vellinum skiptir mestu máli.“

„Það er heldur ekki hægt að útskýra allt. Ég get ekki komið hingað og sagt frá öllu sem er í gangi, en ég veit líka að eftir leikinn mun ég hafa færri rök til að verja okkar málstað. Þannig hugsar þessi hópur og það gefur okkur enn meiri hvatningu,“
sagði Kompany.

Samkvæmt Christian Falk hefur Kompany fullvissað bæði leikmannahópinn og aðra innan félagsins um að það sé allt í lagi með Musiala og engin ástæða til að hafa áhyggjur af honum.
Vincent Kompany

Vincent Kompany

Canon

Mynd: EPA

Kompany: Eðlilegt að það sé ekki alltaf fullkomin ró í kringum okkur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.