24.11.26 - 20:47
Brynjar Ingi Erluson
Væri til í að ljúka ferlinum hjá Roma

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski sóknartengiliðurinn Paulo Dybala segist vel geta hugsað sér að ljúka ferlinum hjá Roma á Ítalíu.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur farið á kostum með Roma síðan hann gekk til liðs við félagið frá Juventus árið 2022.
Hann hefur glímt við meiðsli á tímabilinu en engu að síður komið að fjórum mörkum í níu leikjum.
„Það væri mjög sérstakt að fá að ljúka ferlinum hér hjá Roma. Það eru ekki mörg önnur félög sem ég gæti hugsað mér að enda ferilinn hjá og ég elska að vera hér,“ sagði Dybala.
Frá því hann gekk til liðs við Roma hefur hann komið að 79 mörkum í 149 leikjum.
Roma stefnir ótrauð á ítalska meistaratitilinn á tímabilinu, en liðið situr í öðru sæti deildarinnar með 30 stig, aðeins tveimur stigum á eftir nágrönnunum í Lazio sem tróna á toppnum.
Í Meistaradeildinni hefur gengið heldur brösuglega og er Roma með fjögur stig eftir fjóra leiki. Liðið heimsækir Evrópumeistara PSG annað kvöld og fær þar tækifæri til að bæta stöðu sína í deildarkeppninni.