Fotbolti.net
24.11.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þrjú stig dregin af Crystal Palace

Skipting á 97. mínútu kostaði þrjú stig.

Skipting á 97. mínútu kostaði þrjú stig.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þrjú stig hafa verið dregin af Crystal Palace þar sem liðið notaði of margar skiptingar í sigri gegn Everton í fyrstu umferð deildarinnar.

Alls má gera fimm skiptingar en einungis í þremur skiptigluggum. Palace gerði skiptingarnar fjórar í fjórum mismunandi gluggum.

Palace gerði skiptingu á 62. mínútu, 83. mínútu, 90. mínútu og 97. mínútu í 1-0 heimasigri gegn Everton þann 6. september.
Búið er að refsa Palace fyrir brotið og missir liðið stigin þrjú sem unnust gegn Everton. Lexi Lloyd-Smith skoraði eina mark leiksins.

Liðið fer því úr 9 stigum niður í sex stig sem er dýrt í botnbaráttunni. Palace er núna í fallumspilssæti, markatölunni á eftir Birmingham í sætinu fyrir ofan. Sex stig eru svo upp í Everton, en Charlton er á botninum með eitt stig.

Everton fær ekki stigin og því enda bæði lið á því að fá núll stig úr leiknum.

„Allir hjá félaginu eru eðlilega svekktir yfir því að svo smávægilegt brot – í ljósi þess að leikmaðurinn var aðeins inni á vellinum í 46 sekúndur á meðan boltinn var í leik – skuli leiða til svo þungrar refsingar; refsingar sem við teljum hvorki sanngjarna né í samræmi við alvarleika málsins."

„Okkur þykir leitt fyrir hönd leikmanna og starfsliðs, sem lögðu mikið á sig til að tryggja verðskuldaðan sigur í endurkomu okkar í WSL,"
segir í yfirlýsingu Palace.
Þrjú stig dregin af Crystal Palace
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.