Fotbolti.net
24.11.26 - 21:15
Brynjar Ingi Erluson

Emery kvartar yfir vellinum - „Nánast ómögulegt að spila fótbolta“

Unai Emery

Unai Emery

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Unai Emery, stjóri Aston Villa, var ósáttur við vallaraðstæðurnar í 1-0 tapi liðsins gegn Galatasaray í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Aston Villa tapaði í Tyrklandi
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Aston Villa tapaði í Tyrklandi

Deniz Gul skoraði sigurmark Galatasaray þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka og var Emery ósáttur við niðurstöðuna, sérstaklega eftir ágæta frammistöðu sinna manna í fyrri hálfleik.

„Ég er svolítið vonsvikinn. Eftir að þeir skoruðu var nánast ómögulegt að spila fótbolta. Þeir voru stöðugt að tefja og svo var aðeins fimm mínútum bætt við. Allt í lagi, þá getum við bara flautað leikinn af fyrst við ætlum ekki að spila meira. Mér fannst dómarinn ekki vera sanngjarn og það er bara þannig,“ sagði Emery.

Hann var heldur ekki ánægður með aðstæðurnar á vellinum í Istanbúl og sagði þær hafa gert sínum mönnum erfitt fyrir.

„Fyrir tveimur árum töpuðum við á útivelli gegn Brugge og Mónakó og mér finnst hægt að bera þá leiki saman við þennan.“

„Af hverju? Vegna þess að stuðningsmennirnir þeirra stóðu þétt við bakið á liðinu og sköpuðu gríðarlega pressu. Aðstæður á vellinum hjálpuðu okkur heldur ekki. Þetta var erfiður leikur því þeir pressuðu okkur af miklum krafti.“

„Við stóðum okkur mjög vel í fyrri hálfleiknum og komum í veg fyrir að þeir gætu haldið boltanum og fært hann fram völlinn. Við náðum líka að stöðva skyndisóknirnar þeirra, en það dugði ekki til því okkur vantaði meiri gæði í sóknarleiknum,“
sagði Emery í lokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.