Fotbolti.net
24.11.26 - 22:49
Brynjar Ingi Erluson

Mourinho: Það sem gerist í Vegas, verður eftir í Vegas

Mourinho: Það sem gerist í Vegas, verður eftir í Vegas
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var að vonum hæstánægður með 5-1 endurkomusigur liðsins á PSV í Meistaradeildinni í kvöld, en Madrídingar hafa nú unnið alla fimm leiki sína í keppninni.
Meistaradeildin: Arsenal og Man City fengu aðeins eitt stig - Real Madrid skoraði fimm
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Arsenal og Man City fengu aðeins eitt stig - Real Madrid skoraði fimm

Madrídingar fóru marki undir inn í hálfleikinn eftir að Ivan Perisic hafði komið PSV yfir úr vítaspyrnu.

Mourinho gerði þrjár breytingar í leikhléi sem áttu eftir að gjörbreyta leiknum. Hann styrkti varnarleikinn með því að senda Ibrahima Konate og Dean Huijsen inn á og setti jafnframt Jude Bellingham einnig inn á, en hann bæði skoraði og lagði upp mark í síðari hálfleiknum.

Portúgalinn var í skýjunum með frammistöðu Bellingham og viðurkenndi að hann hefði mögulega gert mistök með því að hafa hann á bekknum.

„Jude Bellingham breytti leiknum. Ég hafði kannski rangt fyrir mér þegar ég hélt að við gætum unnið án hans, en ég var að reyna að stýra álaginu á honum,“ sagði Mourinho.

Hann vildi hins vegar ekkert gefa upp um hvað fór fram í búningsklefanum í hálfleik og hvað hann sagði við leikmenn sína áður en þeir völtuðu yfir PSV í síðari hálfleiknum.

„Hvað gerði ég í hálfleik? Búningsklefinn er eins og Las Vegas. Það sem gerist í Vegas verður eftir í Vegas,“ sagði Portúgalinn eftir leikinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.