25.11.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu flottustu mörk gærkvöldsins: „Zidane er miklu betri en ég“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Nokkur glæsileg mörk voru skoruð í Meistaradeild Evrópu í gær, en eitt þeirra bar þó af. Það var draumamark Jude Bellingham í 5-1 sigri Real Madrid á PSV.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Arsenal og Man City fengu aðeins eitt stig - Real Madrid skoraði fimm
Jude Bellingham, Viktor Gyökeres, Luis Milla og Rayan Cherki áttu fjögur af glæsilegustu mörkum kvöldsins.
Mark Gyökeres var einstaklega snoturt, en hann lét vaða fyrir utan vítateiginn og boltinn sveif í fallegum boga yfir Gregor Kobel í marki Borussia Dortmund. Mark Milla í 1-0 sigri Como á AEK var ekki síðra.
Cherki skoraði líklega síst glæsilega markið af þessum fjórum, þótt það hafi vissulega verið nokkuð laglegt.
Mark Bellingham var hins vegar í algjörum sérflokki. Boltinn skoppaði til hans fyrir utan vítateiginn og hann hélt honum tvisvar á lofti áður en hann þrumaði honum upp í hægra markhornið.
Bellingham, sem er 23 ára gamall, hefur oft verið líkt við frönsku goðsögnina Zinedine Zidane, en Englendingurinn vill þó ekki bera sig saman við átrúnaðargoðið sitt.
„Mér finnst Zidane miklu betri en ég. Hann er mun fágaðri leikmaður og hefur alltaf verið átrúnaðargoðið mitt,“ sagði Bellingham.
Hægt er að sjá öll mörkin hér fyrir neðan og dæmi nú hver fyrir sig.

Bellingham // Milla // Gyökeres // Cherki ?
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) November 25, 2026
Incredible goals across Europe ????
@Heineken | #UCLGOTD https://t.co/MuMHi5mBEh