25.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mættur aftur til Egilsstaða fimmtán árum síðar

Mynd: Höttur

Mynd: Höttur
Makedóninn Gorazd Mihajlov hefur verið ráðinn nýr þjálfari Hattar á Egilsstöðum, en hann snýr þar með aftur til félagsins fimmtán árum eftir að hann yfirgaf það.
Gorazd þarf vart að kynna fyrir Héraðsbúum, en hann kom fyrst til Hattar árið 2005 og varð einn dáðasti aðkomumaður í sögu félagsins.
Hann lék með Hetti tímabilin 2005 og 2006, auk þess sem hann spilaði með Spyrni og Huginn/Spyrni. Síðar tók hann við þjálfun Hattar og kom að uppbyggingu fótboltastarfsins hjá félaginu.
Gorazd yfirgaf Hött árið 2011 og hefur síðan þá byggt upp glæsilegan þjálfaraferil. Hann hefur starfað í Bosníu, Norður-Makedóníu, Sádi-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Litháen, auk þess að hafa þjálfað kvennalandslið Norður-Makedóníu.
Mihajlov hefur meðal annars orðið bikarmeistari með Teteks í heimalandinu, komið tveimur liðum upp í efstu deild og verið kjörinn þjálfari ársins í Norður-Makedóníu í tvígang.
Nú er hann hins vegar kominn aftur „heim“ og mun stýra Hetti á komandi tímabili. Honum til aðstoðar verður Ármann Davíðsson, sem var aðstoðarþjálfari liðsins á síðasta tímabili og þótti standa sig afar vel.
Ármann tók einnig tímabundið við sem aðalþjálfari undir lok sumarsins og stýrði Hetti í sjötta sæti í 3. deildinni.