Fotbolti.net
25.11.26 - 10:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Meiri líkur en minni á að Freyr stýri Rosenborg um helgina

Meiri líkur en minni á að Freyr stýri Rosenborg um helgina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru meiri líkur en minni á því að Freyr Alexandersson verði á hliðarlínunni þegar Rosenborg mætir Molde í stórleik helgarinnar.

Rosenborg tekur á móti Molde á Lerkendal á laugardag og fer með sigri langt með að tryggja Evrópusæti á næsta tímabili. Rosenborg er í 4. sætinu með þriggja stiga forskot á Molde í 5. sætinu fyrir leikinn þegar þrjár umferðir eru eftir.
Semja við Rosenborg um greiðslu fyrir Frey
TENGT EFNI

Semja við Rosenborg um greiðslu fyrir Frey

Freyr er efsti maður á blaði hjá Swansea í ensku Championship-deildinni og hefur fengið starfstilboð frá félaginu.

Framundan hjá Swansea er Wales slagurinn gegn Cardiff á sunnudag en útlit er fyrir að bráðabirgðastjórinn Ashley Williams stýri Swansea í þeim leik. Það er einn stærsti grannaslagurinn í enska boltanum.

Freyr hefur náð frábærum árangri hjá Rosenborg, tók við í sumar og hefur unnið 14 af 19 leikjum sem þjálfari Rosenborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.