25.12.13 - 18:00
Alexander Freyr Tamimi
Alan Curbishley ráðinn til Fulham (Staðfest)

Alan Curbishley þjálfaði síðast lið West Ham.

Mynd: Getty Images

Alan Curbishley er mættur aftur í fótboltann, nú sem tæknilegur ráðgjafi hjá Fulham.
Þessi fyrrum stjóri Charlton og West Ham hefur ekki starfað við fótboltann í fimm ár, en var þó reglulega sérfræðingur á Sky Sports News.
Knattspyrnustjórinn Rene Meulensteen, sem tók nýlega við stjórastarfinu af Martin Jol, er ánægður með komu Curbishley.
,,Ég er mjög ánægður með að Alan hafi gengið til liðs við okkur og ég veit að sérfræðiþekking hans verður okkur mjög mikilvæg út tímabilið,“ sagði Meulensteen við heimasíðu Fulham.
,,Eftir að Martin (Jol) hætti, þá ræddi ég við framkvæmdastjórann og stjórnarformanninn um þær áskoranir sem bíða okkar, og ég var í skýjunum með að þeir hafi stutt þá hugmynd um að styrkja þjálfarateymið.“
„Alan hefur flotta ferilskrá í bransanum og veit nákvæmlega hvað þarf til að ná árangri. Ég hlakka til að deila hugmyndum með honum og hlusta á ráðgjöf hans.“