Fotbolti.net
26.01.14 - 15:34
Daníel Freyr Jónsson

Mohamed Salah kominn til Chelsea (Staðfest)

Mohamed Salah í leik gegn Chelsea.

Mohamed Salah í leik gegn Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, staðfesti nú rétt í þessu að félagið hefði gengið frá kaupunum á Egyptanum Mohamed Salah frá Basel.

Talið er að Chelsea greiði 11 milljónir punda fyrir þennan efnilega leikmann en liðið hafði betur gegn Liverpool í baráttu um leikmanninn.
Mourinho staðfesti þetta í samtali við fjölmiðla fyrir leik liðsins gegn Stoke í enska bikarnum sem nú er nýhafinn.

Salah hefur verið undir smásjá stórliða í Evrópu undanfarin misseri eftir að hafa staðið sig vel með Basel í Meistaradeild Evrópu og skoraði þar meðal annars í tvígang gegn Chelsea.

Hann hefur skorað 17 mörk í 27 landsleikjum með Egyptalandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.