Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 26. janúar 2020 16:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Shrewsbury og Liverpool: 11 breytingar hjá Klopp
Jones tryggði sigur gegn Everton í síðustu umferð.
Jones tryggði sigur gegn Everton í síðustu umferð.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gerir 11 breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í síðustu viku. Liverpool, topplið úrvalsdeildarinnar, mætir Shrewsbury úr C-deild í enska bikarnum.

Salah og Firmino eru á bekknum eins og Trent Alexander-Arnold.

Ungir leikmenn eins og Curtis Jones, Harvey Elliott, Yaser Larouci og fleiri fá tækifæri. Takumi Minamino kemur þá inn í byrjunarliðið, ásamt Fabinho.

Dejan Lovren er fyrirliði Liverpool í dag.

Leikurinn hefst klukkan 17:00 og fer fram á heimavelli Shrewsbury.

Byrjunarlið Shrewsbury: O'Leary; Williams, Ebanks-Landell, Pierre, Love, Laurent, Goss, Norburn, Golbourne, Whalley, Lang.
(Varamenn: Murphy, Edwards, Beckles, Walker, Udoh, Cummings, Hart)

Byrjunarlið Liverpool: Adrian, Williams, Matip, Lovren, Larouci, Fabinho, Chirivella, Jones, Minamino, Elliott, Origi.
(Varamenn: Kelleher, Keita, Firmino, Salah, Oxlade-Chamberlain, Hoever, Alexander-Arnold.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner