Selfoss 4 - 1 Víkingur Ó.
Mörk Selfoss: Valdimar Jóhannsson, Kenan Turudija, Þór Llorens Þórðarson og Brynjólfur Þór Eyþórsson.
Mark Víkings Ó.: Indriði Áki Þorláksson.
Mörk Selfoss: Valdimar Jóhannsson, Kenan Turudija, Þór Llorens Þórðarson og Brynjólfur Þór Eyþórsson.
Mark Víkings Ó.: Indriði Áki Þorláksson.
Selfoss vann sinn fyrsta leik í Fótbolta.net mótinu þegar liðið mætti Víkingi Ólafsvík í Akraneshöllinni í dag.
Bæði lið voru stigalaus fyrir leikinn, en það voru Selfyssingar sem fóru með sigur af hólmi. Valdimar Jóhannsson, Kenan Turudija, Þór Llorens Þórðarson og Brynjólfur Þór Eyþórsson voru á skotskónum fyrir Selfoss í 4-1 sigri.
Það er þar með ljóst að Selfoss endar í þriðja sæti í riðli 1 í B-deild. Liðið leikur því um fimmta sætið gegn Haukum.
Ólsarar enda í neðsta sæti riðilsins án stiga og mæta því Vestra í leiknum um sjöunda sætið í B-deildinni.
Athugasemdir