16-liða úrslit Afríkukeppninnar klárast í kvöld með tveimur leikjum en Fílabeinsströndin mætir Egyptalandi á meðan Malí og Miðbaugs-Gínea eigast við.
Stuðningsmenn Liverpool fylgjast spenntir með leik Fílabeinsstrandarinnar og Egyptalands en Mohamed Salah, besti leikmaður liðsins, verður í eldlínunni.
Það er hlé á ensku úrvalsdeildinni sem stendur og margir leikmenn sem fá kærkomið frí en það er ljóst að eftir leikinn fara að minnsta kosti þrír úr ensku úrvalsdeildinni aftur til félagsliða sinna.
Trezeguet, Mohamed El Neny og Salah spila allir með Egyptalandi á meðan Nicolas Pepe, Wilfried Zaha, Eric Bailly og Maxwel Cornet spila allir með Fílabeinsströndinni.
Leikir dagsins:
16:00 Fílabeinsströndin - Egyptaland
19:00 Malí - Miðbaugs-Gínea
Athugasemdir