ÍA er búið að krækja í markvörð fyrir komandi átök í 2. deild í sumar.
Markvörðurinn kemur frá Bandaríkjunum og heitir Brooke Jones. Hún er 21 árs gömul og hefur leikið með Idaho í efstu deild bandaríska háskólafótboltans. Brooke skrifar undir samning sem gildir út tímabilið.

Þá tilkynnti ÍA einnig að félagið hefði gert samkomulag við Dagnýju Halldórsdóttur um að spila með liðinu út tímabilið 2022.
Dagný er fædd árið 2002 og er uppalin hjá ÍA. Á síðasta tímabili lék hún sautján leiki með liðinu í Lengjudeildinni.
ÍA endaði í neðsta sæti Lengjudeildarinnar í fyrra, einungis stigi frá öruggu sæti.
Athugasemdir