Spænski leikmaðurinn Ayoze Perez er á leið til Villarreal á láni frá Leicester. Þetta kemur fram í spænska miðlinum .
Perez hefur spilað á Englandi í níu ár. Hann spilaði fyrir Newcastle í fimm ár áður en Leicester keypti hann árið 2019.
Spánverjinn hefur lítið komið við sögu á þessu tímabili með Leicester og heldur hann því aftur til Spánar í leit að meiri spiltíma.
Real Betis var lengi vel að leiða kapphlaupið um hann en Villarreal kom inn á elleftu stundu og stal honum frá Betis.
Leicester lánar hann út þessa leiktíð og mun Villarreal aðeins greiða launakostnað leikmannsins.
Athugasemdir