Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. janúar 2023 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Real Madrid að kaupa Fran Garcia til baka
Mynd: EPA

Real Madrid ætlar að kaupa bakvörðinn Fran Garcia til baka frá Rayo Vallecano fyrir um fimm milljónir evra.


Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu en Real Madrid seldi leikmanninn til Rayo fyrir einu og hálfu ári síðan.

Rayo borgaði lítið fyrir Garcia en Real hélt endurkaupsrétti og 50% af hagnaði á næstu sölu. Real fær bakvörðinn því fyrir svo lítið sem fimm milljónir evra.

Garcia er algjör lykilmaður í liði Rayo sem er að gera flotta hluti í spænsku deildinni og er aðeins nokkrum stigum frá baráttu um Evrópusæti.

Fleiri félög hafa áhuga á Garcia en talið útilokað að hann fari einhvert annað en aftur heim til Real.


Athugasemdir
banner