Fotbolti.net
26.02.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Igor Taskovic í Víking R (Staðfest)

Ólafur Þórðarson er þjálfari Víkings.

Ólafur Þórðarson er þjálfari Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Serbneski miðjumaðurinn Igor Taskovic er genginn til liðs við Víking Reykjavík en þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs karla hjá félaginu við Fótbolta.net í gær.
Taskovic sem hefur æft með liðinu upp á síðkastið skrifaði undir eins árs samning við Víking sem leikur í 1. deild karla á komandi sumri.

Hann er sjöundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Víkinga frá síðustu leiktíð. Áður komu Andri Steinn Birgisson frá Leikni R, Axel Kári Vignisson frá ÍR, Dofri Snorrason frá KR, Ingvar Þór Kale frá Breiðabliki, Ívar Örn Jónsson frá HK og Óttar Steinn Magnússon frá Hetti.

Sjö leikmenn eru farnir frá félaginu frá síðustu leiktíð, Aaron Spear til ÍBV að nýju úr láni, Chris Ross, Egill Atlason í Leikni R., Evan Schwartz til Bandaríkjanna, Helgi Sigurðsson í Fram, Kevin Schmidt til Danmerkur og Sigurður Egill Lárusson í Val.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.