Fotbolti.net
26.02.13 - 15:19
Magnús Már Einarsson

Kennie Chopart spilar með Stjörnunni í sumar (Staðfest)

Kennie Chopart spilar með Stjörnunni í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Kennie Chopart mun leika áfram með Stjörnunni í sumar en hann hefur náð samningum við félagið.

Þessi 22 ára gamli Dani spilaði í ýmsum stöðum hjá Garðbæingum í fyrra en hann var meðal annars vinstri bakvörður, kantmaður og framherji.
,,Ég hreifst af honum þegar ég sá Stjörnuna spila í fyrra. Hann fær virkilega góð meðmæli hjá samherjum sínum og stjórnarmönnum. Þetta eykur breiddina og styrkir bæði liðið og hópinn,\" sagði Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar í samtali við Fótbolta.net í dag.

Logi reiknar einnig með að Stjarnan gangi frá samningum við Robert Sandnes á næstunni en hann lék undir hans stjórn hjá Selfyssingum í fyrra.

,,Við erum að vinna í praktískum málum í kringum þetta,\" sagði Logi sem reiknar með að Stjarnan láti staðar numið í leikmannamálum í kjölfarið.

,,Ég geri ráð fyrir því að við munum ekki fá fleiri menn,\" sagði Logi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.