Fotbolti.net
26.02.14 - 20:48
Magnús Már Einarsson

Andrew Sousa í Fylki (Staðfest)

Andrew Sousa í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Bandaríkjamaðurinn Andrew Sousa skrifaði í kvöld undir eins árs samning við Fylki en þetta kemur fram á Fylkismenn.is.
Sousa er 24 ára gamall en hann getur spilað á báðum köntunum og fyrir aftan framherjann.

Undanfarnar vikur hefur hann æft með Fylki en hann spilaði í 1-0 tapi liðsins gegn Stjörnunni í æfingaleik á dögunum.

Sousa var á sínum tíma á mála hjá New England Revolution í MLS deildinni en síðast lék hann með Ottawa Fury í D-deildinni í Bandaríkjunum.

Sousa er með portúgalskt vegabréf en hann hefur einnig leikið með CD Operário í portúgölsku C-deildinni.

Heimild: Fylkismenn.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.