Fotbolti.net
26.02.14 - 23:12
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea semur við Simpsons (Staðfest)

Eden Hazard og félagar verða í Simpsons-stíl

Eden Hazard og félagar verða í Simpsons-stíl

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea á Englandi hefur gert gert samstarfssamning við bandarískju sjónvarpsseríuna The Simpsons en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn Twentieth Century Fox hefur boðið áhorfendum um allan heim upp á hina geysivinsælu Simpsons þætti frá árinu 1989 en þeir hafa verið á dagskrá á Stöð 2 hér á Íslandi.

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur nú gert samstarfssamning við þættina en vörur tengdar Chelsea verða framleiddar í Simpsons-stílnum.

Chelsea fagnaði samningnum með fimm leikmönnum. Petr Cech, Eden Hazard, Frank Lampard, John Terry og Fernando Torres hafa allir fengið sína fígúru en allir leikmenn liðsins fá fígúru í Simpsons-stíl.

,,Það er frábært að sjá mig og aðra leikmenn liðsins í Simpsons-stíl. Þetta var og eru uppáhalds þættirnir mínir, líka hjá börnunum mínum. Ég get ekki beðið eftir að sjá hvernig Bart og Homer verða sem leikmenn Chelsea,\" sagði John Terry.

Simpsons hefur unnið 28 Emmy-verðlaun og þá valdi tímaritið Time þessa þætti sem besta þætti tuttugustu aldar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.